Sagan
Upphafið
Purity Herbs var stofnað á Akureyri 1994. Stofnendur þess voru Ásta Kristín Sýrusdóttir og André Raes.
Kveikjan að stofnun Purity Herbs var af einskærri af tilviljun. André átti áhugamál sem tók hug hans allan en það var að búa til krem, olíur og te úr jurtum og öðrum náttúruefnum.
Eftir að hann fluttist til Íslands opnaðist honum nýr heimur í þessu sambandi því þar óx fjöldinn allur af heilnæmum, villtum og hreinum jurtum sem hann gat nýtt í þessa tilraunastarfsemi sína. Afraskturinn fór til vina og vandamanna til að reyna að draga úr húðkvillum og bæta ástand húðarinnar.
Á þessum tíma, árið 1993 vann Ásta á leikskóla í bænum og þar var lítill drengur sem var með mikið útbrot og exem. Ásta fékk leyfi hjá móður drengsins til að bera á hann eitt af þessum jurtakremum. Árangurinn lét ekki á sér standa, á nokkrum dögum voru útbrotin næstu gróin og húðin nánast orðin heilbrigð. Þetta einstaka krem var kallað "Undrakrem" og heitir enn í dag.
Næstu skref
Það vildi svo til afi drengsins var Böðvar Jónsson apótekari í Akureyrarapóteki, hann undraðist mjög þessa einstöku virkni í kreminu og kom að máli við Ástu og hvatti þau til að hefja framleiðslu á þessum náttúruvörum svo fleiri fengju að njóta góðs af Undrakreminu og öðrum öðrum. kremum.
Með ráðgjöf, hvatningu og hjálp Böðvars og Iðnþróunarfélagsins var Purity Herbs stofnað og hjólin fóru að snúast og þar með Purity Herbs orðið fyrsta snyrtifyrirtækið á Íslandi til að framleiða náttúrulegar snyrtivörur.
Nútíminn
í dag meira en tvö áratugum síðar er Purity Herbs sérhæft í 100% náttúrulegum húðvörum, og framleiðir yfir 50 tegundir sem henta öllum aldurshópum og allar húðgerðir.
Vörur Purity Herbs eru sjaldan um allt land og í mörgum löndum um allan heim og eru enn vaxandi fyrirtæki.